Sókrates – sérsniðinn stafrænn starfskraftur
Gervigreind er á allra vörum. Hvað getur hún? Hvað gerir hún? Hvernig gagnast hún?
Það líður varla sá dagur að ekki berist fréttir af stórkostlegum framförum á einhverju sviði gervigreindar. Við fórum inn fyrir sjónhvörfin í desember síðasta árs og héðan af verður ekki aftur snúið. Grok bjargar besta vini mannsins frá krabbameini með genameðferð, Claude finnur öryggisgalla í öllum stýrikerfum sem höfðu hulist mönnum í áratugi, Gemini sannar nýja stærðfræði – og hraðinn bara eykst. Samhliða sívaxandi greind og getu gervigreindarinnar hafa hætturnar sem fylgja óupplýstri notkun aukist í jöfnum mæli. Til þess að flækja málið enn frekar þá staðfesti rannsókn frá Hagstofu Íslands birt 10. mars síðastliðinn að þrátt fyrir að nánast allir noti gervigreind í starfi hefur hún hingað til skilað sér í aukinni verðmætasköpun hjá brotabroti notenda. Fólk veit ekki hvað hún getur, veit ekki hvernig henni er beitt og allra síst hvernig ber að beisla hana í eigin rekstri.
Sókrates er svarið. Við setjum upp litla tölvu sem keyrir á sérsniðnu stýrikerfi, hýsir sérþjálfað gervigreindarlíkan og keyrir á þínum vélbúnaði. Því næst tengjum við hana við innra net rekstursins með öryggishliðum sem tryggja að snertiflötur líkansins falli fullkomlega að þínum kerfum og fyrirliggjandi rekstrarumhverfi.
Sókrates hefst svo handa við að kortleggja starfsemina strax og hann vaknar. Með því að lesa bæði gögnin og uppbyggingu lykilkerfa rekstursins byggir Sókrates upp sameiginlega mynd af því hvernig fyrirtækið raunverulega virkar — hvaða hlutir skipta máli, hvernig þeir tengjast, hvaða ferli færa mál áfram og hvaða reglur gilda. Þannig sér hann samhengi sem sérhvert kerfi sér aðeins í brotum: að sami viðskiptavinur birtist í sölu, þjónustu og bókhaldi, að samþykktir tefjast á sama stað og að sömu frávik koma aftur og aftur. Þar með getur Sókrates svarað spurningum sem ekkert eitt kerfi getur svarað eitt og sér.
Með tímanum lærir hann svo hvaða mynstur skipta mestu máli í þínum rekstri og setur þau fram sem lifandi reglur og fyrirspurnir sem uppfærast sjálfkrafa þegar gögn eða ferlar breytast. Hann lærir af starfsfólkinu í gegnum samtöl, lærir af reynslunni við störf sín og sérhæfir sig í þeim skyldum sem þú vilt að hann gegni í krafti þess að búa í ofurtölvu. Sókrates segir því sjálfur frá því hvað hann getur gert, getur bara beitt sér þar sem þú hleypir honum að og spyr hvernig hann geti best komið að gagni.
Þú þarft ekki að skilja allt sem er í gangi í gervigreind. Þú þarft bara aðgang að einhverjum sem gera það. Þegar þú skrifar undir samning við Sókrates ertu ekki að fá almenna lausn við almennum vandamálum. Þú færð lausn sem vex með tímanum, uppfærist í takt við nýjustu tækni og tekur mið af þínum rekstri í beinu samráði við þig og þitt starfsfólk. Láttu okkur vera gervigreindardeildina þína svo þú getir einbeitt þér að öllu hinu.
Hvort sem þú ert að hefja innleiðingu gervigreindar eða ert kominn vel á veg í sjálfvirknivæðingu þar sem þú kallar í Claude við hvert tækifæri getum við tekið næsta skref með þér. Heyrðu í okkur, bókaðu fund og sjáðu hvað Sókrates getur gert fyrir þig.